Terms of service
Almennt
Neytendur eru hvattir til þess að lesa skilmála þessa vandlega áður en þeir versla í vefverslun 4E, 4everslun.is. Um notkun vefsíðu og vefverslunar 4E gilda skilmálar þessir. Með því að nota vefsíðu og vefverslun 4E samþykkir og viðurkennir neytandi að hann hafi kynnt sér, skilið og samþykkt, án fyrirvara, skilmála þessa, eins og þeir eru á hverjum tíma. 4E, kt.6611210250,er staðsett að Engjavegi 63, 800 Selfossi. 4E áskilur sér rétt til að breyta reglum og skilmálum þessum án fyrirvara.
Verð
Öll verð á síðunni eru birt með fyrirvara um innsláttarvillur. 4E áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga og einnig að breyta verðum eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Þetta á einnig við ef um villur í reiknireglum vefverslunar er að ræða.
Vörur til einkanota
Vörurnar í vefverslun 4E eru eingöngu til persónulegra nota. Undir engum kringumstæðum er heimilt að stunda endursölu á vörum 4E án tilskilinna leyfa. 4E áskilur sér rétt til að stöðva afgreiðslu pantana eða halda eftir hluta þeirra ef talið er að þær brjóti í bága við þessa skilmála.
Nákvæmni upplýsinga
Reynt er eftir bestu getu að hafa réttar upplýsingar og vörumyndir í vefverslun. Upp geta komið tilvik þar sem um minniháttar litamun eða umbúðamun getur verið að ræða. Að öðru leyti eru upplýsingar birtar með fyrirvara um innsláttarvillur eða minniháttar uppfærslutafir.
Greiðsluleiðir
Hægt er að inna greiðslu af hendi í vefverslun með greiðslukorti. 4E er eigandi vörunnar þar til andvirði hennar er að fullu greitt.